Leit á vefnum

12. september 2012 | Fréttir

Nýtt vörumerki, Tabasco

Það er okkur ánægja að tilkynna að Innnes hefur tekið við dreifingu og sölu á Tabasco vörum.  Tabasco sósurnar eru Íslendingum að góðu kunnar enda um frábærar vörur að ræða sem er gott að grípa til við hvers konar matreiðslu.
12. september 2012 | Fréttir

Nýtt vörumerki, Oscar

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Oscar A/S hefur falið Innnes ehf dreifingu
og sölu á öllum Oscar vörum frá og með 1. september 2012.
31. maí 2012 | Fréttir

Tilurð nafnsins á Innnes

Hvers vegna heitir fyrirtækið Innnes?

12. apríl 2012 | Fréttir

Nýr vörulisti Innnes

Vörulisti okkar fyrir árið 2012 er nú kominn á vefinn okkar.
24. janúar 2011 | Fréttir

Innnes opnar nýtt húsnæði á Akureyri

Innnes ehf. hefur opnað nýja söluskrifstofu á Akureyri, að Fjölnisgötu 6A. Húsnæðið hefur að geyma vörugeymslu sem einnig er útbúin með frystigeymslu þannig að um umtalsverða aukningu á þjónustu við svæðið er að ræða.
24. janúar 2011 | Fréttir

Selecta á Íslandi tekur í notkun metanbíla

Selecta á Íslandi, dótturfyrirtæki Innnes, hefur tekið í notkun fjóra nýja Mercedes-Benz Sprinter atvinnubíla sem ganga fyrir íslensku metani.
24. janúar 2011 | Fréttir

Innnes enn vistvænna en áður

Innnes hefur samið við Gámaþjónustuna um alla sorphirðu fyrir félagið.
04. apríl 2011 | Eftirréttir

Bláberjakonfekt

Konfekt sem kemur á óvart, mjög gott með kaffinu!
04. apríl 2011 | Eftirréttir

Múffur með Daim kurli

Frábært uppskrift sem hentar vel í barnaafmælið eða saumaklúbbinn.
24. janúar 2011 | Vörumerki

Filippo Berio

Filippo Berio ólífuolíurnar hafa löngum verið þekktar fyrir gæði og bragð, allar götur síðan 1867 og hefur Filippo Berio unnið til mýmargra verðlauna víðs vegar um heim. Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldu allt frá upphafi. Filippo Berio er mest selda olían á Íslandi og hefur verið um árabil, hægt er að fá venjulega olíu, jómfrúarolíu, ýmsar kryddolíur ásamt balsamic ediki.
07. apríl 2011 | Vörumerki

Ritz

Ritz kexið er frábært á bragðið og bókstaflega bráðnar í munninum. Það er hægt að borða beint úr kassanum eða með salati, ostum eða ídýfu. Þetta heimsfræga kex þarfnast engrar kynningar, enginn gleðskapur, ekkert mannamót er fullkomnað án Ritz.

Ritz er hið fullkomna saltkex.

 

24. janúar 2011 | Vörumerki

Orville

Orville örbylgjupoppið á rætur sínar að rekja til Orville Redenbacher nokkurs, sem ræktaði sérstaka gerð maískorns sem þótti einstaklega heppilegt til poppkornsgerðar. Æ síðan hefur þessari uppskrift verið fylgt í þaula. Orville er langmest selda örbylgjupoppið á Íslandi og er boðið uppá venjulegt popp, léttpopp, smjörpopp ásamt hefðbundnum poppmaís.
13. apríl 2011 | Vörumerki

Extra

Extra vörurnar eru framleiddar af Wrigley's, stærsta framleiðanda tyggigúmmís í heimi, og eru þekktar og elskaðar um allan heim. Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins.

Extra...gott bragð fyrir heilbrigðar tennur.





11. apríl 2011 | Vörumerki

Maxwell House

Maxwell House á rætur að rekja til Bandaríkjanna og var upphaflega þróað af Joel Cheeck í Nashville, Tennessee árið 1892. Sagan segir að 1907, hafi Theodore Roosevelt þá forseti, þegið kaffibolla og komist svo að orði að þetta kaffi væri gott til síðasta dropa. Maxwell House er í dag ristað með 100% Arabica baunum, sem eru þær bestu í heiminum, með ríku bragði en án nokkurs biturleika.
23. apríl 2013 | Vörulistar

Vörulisti INNNES 2013

Vörulisti INNNES 2013

 

25. janúar 2011 | Vörulistar

Vörulisti Selecta 2012

Vörulisti Selecta 2012
07. desember 2012 | Fyrirtækið

Um INNNES

INNNES ehf. er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins. Mörg vörumerki fyrirtækisins eru landsmönnum að góðu kunn. Félagið hefur á að skipa samhentum hópi starfsmanna sem tilbúinn er að þjóna viðskiptavinum eins og kostur er.
10. apríl 2013 | Fyrirtækið

Starfsmenn

Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns og er INNNES með skrifstofu í Reykjavík og á Akureyri.

 

12. apríl 2011 | Fyrirtækið

Staðsetning

 

 

15. apríl 2011 | Fréttir

Ný heimasíða og nýr vörulisti Innnes.

Innnes hefur opnað nýja heimasíðu og gefið út nýjan vörulista.
04. apríl 2011 | Eftirréttir

Frosið Toblerone soufflé

Eftirminnileg soufflé uppskrift á veisluborðið!
01. febrúar 2011 | Vörumerki

Hunt´s

Í meira en 100 ár hafa Hunt's tómatvörurnar verið framleiddar og er Hunt's stærsti tómataframleiðandi í heimi. Íslendingar hafa einnig tekið Hunt's opnum örmum og er vörumerkið það mest selda á Íslandi í hinum ýmsu vöruflokkum, s.s. tómatsósu, grillsósum, pasta- og pizzasósum, niðursoðnum tómötum svo og tómatpúrru.

01. febrúar 2011 | Vörumerki

Corny

Corny heilsubitarnir eru framleiddir í Þýskalandi og eru sérlega hentugir fyrir þá sem langar í eitthvað sætt en hafa samt hollustuna í fyrirrúmi. Þær eru búnar til úr múslí (korni, hnetum, ávöxtum) og hunangi. Þær eru til í ýmsum bragðtegundum, t.d. súkkulaði, banana, kókos. Í dagsins amstri er gott að grípa í Corny.

Corny BIG heilsustykkin eru nú fáanleg í 7 bragðtegundum:

  • Corny BIG súkkulaði
  • Corny BIG banana/súkkulaði
  • Corny BIG dunkle súkkulaði cookies
  • Corny BIG trönuberja
  • Corny BIG hnetu- og rúsínu
  • Corny BIG salthnetu
  • Corny BIG kókos
04. apríl 2011 | Vörumerki

Kraft Foods

Kraft Foods er alþjóðlegt snakk orkuver með framúrskarandi safni af vörumerki fólki kærleika. Nokkrar staðreyndir um Kraft:

  • Kraft er næst stærsta matvörufyrirtækið í heiminum.
  • Milljón sinnum á dag, í u.þ.b. 170 löndum, teyja neytendur sig í uppáhalds Kraft Foods vörumerkið þeirra.
  • Meira en 80 prósent af tekjum Kraft koma frá vörum sem eru markaðsráðandi í matvöruflokki sínum.
  • Og meira en 50 prósent af tekjum Kraft er knúinn af flokkum þar sem markaðshlutdeild okkar er tvöföld stærð næsta keppinauts.
  • Kraft berst gegn hungri og hvetur til heilbrigðs lífsstíls en undanfarin 25 ár hefur Kraft gefið næstum milljarð dollara í reiðufé og mat.
  • Kraft er leiðandi í nýsköpun, markaðssetningu, heilsu og vellíðan og sjálfbærni.

Vörumerki Kraft Foods á Íslandi eru: Cote d´Or, Daim, Gevalia, LU, Marabou, Milka, Oreo, Philadelphia, Toblerone og TUC.

05. febrúar 2011 | Vörumerki

Henry Lamotte

04. apríl 2011 | Vörumerki

LU

Sagan af LU hófst árið 1850 með því að tveir franskir bakarar, herra LeFevre og ungfrú Utile, felldu ung að árum hugi saman, gengu í hjónaband og hófust handa við að skapa dýrindis kexkökur saman, sem á voru letraðir upphafsstafir þeirra beggja, LU. Ástríða þeirra fyrir úrvals hráefni, auðþekkjanlegum og einstökum kexkökum er enn þann dag í dag sannur innblástur hverrar einustu LU kexköku sem framleidd er.

LU kexkökurnar eru fáanlegar í 6 bragðtegundum:

  • LU Petit Ecolier Milk
  • LU Petit Ecolier Dark
  • LU Bastogne
  • LU Bastogne DUO
  • LU Pim´s Orange
  • LU Digestive Classic
11. apríl 2011 | Vörumerki

Gevalia

Gevalia kaffi fæst nú í nýjum umbúðum sem skila því fersku og ilmandi í bollann þinn. Gæðin eru þau sömu og þeim geta neytendur alltaf treyst.

Gevalia kaffið þekkja Íslendingar eingöngu að góðu enda það verið á markaðinum í áraraðir við miklar vinsældir. Gevalia er kaffið sem státar af miklum og stöðugum gæðum, sem neytendur treysta. Það endurspeglast  í vinsældum Gevalia.

Gevalia kaffið hefur tekið þátt í samfélagslegum verkefnum og verið ötull bakhjarl íslenskra góðgerðarsamtaka um árabil.





04. apríl 2011 | Vörumerki

Fazer

Sælgætis vörumerkin frá Fazer byggja á gæðum og óviðjafnanlegu bragði. Það er sagt að Karl Fazer, stofnandi Fazer hafi sagt: "Við verðum að leitast við að fara yfir væntingar viðskiptavina okkar."

Í dag er Fazer sífellt að markaðssetja nýjar vörur og leitast eftir sniðugum hugmyndir en Fazer miðar ávallt að því að líta fram á við. Gæði nást með því að nota aðeins besta hráefni, frábærar uppskriftir, með framleiðsluferli á heimsmælikvarða og faglegt starfsfólk.

Fazer framleiðir fjölmargar vörur og á meðal þeirra eru Tyrkisk Peber, Skole-kridt og Dumle.

Tyrkisk Peber

Gallharður, brennheitur og sjúklega sterkur. Eða mjúkur, mildur og frekar mildur? Tyrkisk Peber er fáanlegur í mismunandi styrkleikum og fjöldi loganna á pakkningunum segja til um styrkleikann. Ef það er enginn logi þá þarf engar áhyggjur að hafa en ef logarnir eru þrír þá krefst það hugrekkis! Leyfðu Tyrkisk Peber koma þér á óvart. Þorir þú?

Skolekridt

Fazer Skole-Kridt eru lakkrís prik sem líta út eins og í krítarnar í skólanum sem þeir draga nafn sitt af. Skole-kridt eru húðaðar með sætri og stökkri skel að utan með mintubragði og eru örlítið kryddaðar með gómsætu lakkrísbragði.

Dumle

Dumle karamellurnar hafa verið á markaðinum síðan 1960 en Dumle er alltaf í góðu skapi. Dumle er jákvæðasta sælgætistegund Svía, alltaf í góðu skapi, alltaf jákvæð og bjartsýn. Ómótstæðileg blanda af mjúkri karamellu og súkkulaði. Dumle, þegar þú vilt dekra við þig og njóta lífsins.

01. febrúar 2011 | Vörumerki

Blue Dragon

Blue Dragon dregur nafn sitt af kínversku tákni sem merkir mikla gæfu. Fyrirtækið var stofnað fyrir meira en 30 árum þegar stofnandinn sá að lítið framboð var af austurlenskum vörum í verslunum. Í fyrstu var vöruvalið mjög takmarkað, aðeins fimm vörutegundir, sojasósa, chili sósa, baunaspírur, bambussprotar og vatnshnetur. Nokkrum árum síðar var núðlum, núðlusúpum og „stir fry“ sósum bætt við vörulínuna. Í dag býður Blue Dragon upp á mikið úrval af ekta austurlenskum vörum sem gera þér kleift að elda gómsæta rétti frá Tælandi, Japan, Víetnam og Kína.

10. febrúar 2011 | Vörumerki

Patak´s

Patak’s er metnaðarfullt vörumerki hvað varðar indverska eldamennsku og vill deila þekkingu sinni með þér. Með því að heimsækja heimasíðu Patak’s getur þú lært allt um margverðlaunaðar vörur þeirra, t.d. sósur, karrý pastes, chutney, pickles, pappadums sem og allar nýju og spennandi uppskriftirnar.
05. febrúar 2011 | Vörumerki

Wrigley

Wrigley’s vörurnar eru þekktar og elskaðar um allan heim og eiga þær sér sumar meira en einnar aldar sögu. Wrigley’s tyggigúmmíið er selt í meira en 180 löndum um alla veröld og er Ísland engin undantekning hvað vinsældirnar varðar. Extra tyggjóið er þekktast hérlendis en sem dæmi má nefna önnur vörumerki á borð við Juicy Fruit, Spearmint, Hubba Bubba og Skittles.

04. apríl 2011 | Vörumerki

TUC

TUC er framleitt undir LU vörumerkinu en LU var stofnað árið 1850 af Monsieur LeFevre og Mademoiselle Utile. LU var í byrjun lítið fjölskyldufyrirtæki í Frakklandi sem óx og varð leiðandi á markaðinum. LU kex er nú fáanlegt í 100 löndum og TUC á Íslandi er fáanlegt í 5 bragðtegundum: með salti, beikon, papriku, sýrðum rjóma og salt & pipar.
08. apríl 2011 | Vörumerki

Trolli

Trolla vörurnar þekkja allir krakkar enda er enginn betri en Trolli þegar kemur að hlaupi og gúmmíi. Vörur eins og gúmmíhringir, ferskjur, gúmmídýr, súrir bangsar og fleiri og fleiri eru fyrir löngu orðin goðsögn meðal Íslendinga. Mjúkt og gómsætt sælgæti, litskrúðugt og skemmtilegt, hvað getur verið betra? Trolli er bestur!
05. febrúar 2011 | Vörumerki

Ultje

Ültje hnetur standa fyrir gæði og þau ráðast af öllu ferlinu, ekki einungis ristuninni. Það er alveg jafnmikilvægt að velja rétta hráefnið og því leggur Ültje mikið upp úr því.  Ültje hnetunum er pakkað í lofttæmdar umbúðir eða þá í poka og dósir í vernduðu andrúmslofti. Á þennan hátt hefur Ültje tekist að ávinna sér traust neytenda og því er eftirlit og gæði ávallt dagsskipunin hjá Ültje.

04. apríl 2011 | Vörumerki

Toblerone

Toblerone er óþarft að kynna, vörumerkið og lögun þess er heimsþekkt og má eiginlega segja að þetta sé eitt frægasta vörumerki heims. Toblerone er búið til úr bestu fáanlegu hráefnum víðs vegar úr veröldinni. Vektu bragðlaukana til lífsins og baðaðu þig í hinni einstöku Toblerone bragðupplifun.
05. febrúar 2011 | Vörumerki

Durkee

Durkee kryddið er framleitt í Bandaríkjunum og á sér meira en 150 ára sögu. Gæðin tala sínu máli en Durkee kryddið er malað frosið þannig að olían og bragðið helst betur í kryddinu og það finnurðu þegar þú bæði lyktar og bragðar kryddið. Innnes býður upp á geysilega breiða línu í kryddi og ættu því allir að finna eitthvað sem fellur að þeirra þörfum.
11. apríl 2011 | Vörumerki

Silverspoon

Silver Spoon er stærsti sykurbirgir í Bretlandi fyrir verslanir og stór í dreifingu til stórfyrirtækja.

Silver Spoon vörumerkið er þekkt fyrir hágæða vörur og á síðustu árum hefur fyrirtækið verið að koma með ýmsar nýjungar á markaðinn td. „low calorie“ sykur og ýmsar sykur vörur tengdar bakstri.

Á Íslandi hafa Silver Spoon vörurnar fyrst og fremst verið í boði á fyrirtækjasviði þe. ekki til endursölu.

04. apríl 2011 | Vörumerki

Oreo

Oreo kexið er eitt þekktasta fyrirbæri í veröldinni því allir þekkja eftirlætiskex jarðarbúa. Oreo er til í þeirri mynd sem við öll þekkjum, svart og hvítt, en er nú einnig til sveipað mjúku og gómsætu mjólkursúkkulaði og meira freistandi en nokkru sinni fyrr. Varúð, þessar kexkökur eru hættulega góðar, þær eru freisting sem vert er að falla fyrir!
04. apríl 2011 | Vörumerki

Maarud

Allir þekkja Maarud, hið fullkomna snakk til að njóta um helgar með fjölskyldunni, vinum og fólkinu sem þú skemmtir þér best með. Maarud er sífellt að koma fram með nýjar og spennandi vörur. Maarud er einnig meðvitað um mikilvægi umhverfisverndar og hefur fengið fjölda evrópskra umverfisverðlauna fyrir viðleitni sína í þeim efnum.

Allt Maarud snakk á Íslandi er transfitulaust.

05. febrúar 2011 | Vörumerki

Milka

Milka er mest selda súkkulaði Kraft Foods fyrirtækisins, stærsta matvælaframleiðanda í heimi. Það er selt í ýmsum stærðum og gerðum og var fyrst framleitt af súkkulaðifrömuðinum Philippe Suchard í Austurríki árið 1901. Bláa og hvíta Milka kúin er orðin vel þekkt og fyrir suma er nóg að sjá hana til vekja upp löngun í gómsætt Milka súkkulaði.
05. febrúar 2011 | Vörumerki

Mills

11. apríl 2011 | Vörumerki

Hirsch

Hirsch var stofnað 1969 sem lítið fjölskyldufyrirtæki og var rekið af stofnandanum Egon Hirsch til ársins 2000 þegar hann féll frá og synir hans Carsetn og Olaf Hirsch tóku við rekstrinum. Þeir höfðu báðir starfað við hlið föður síns til margra ára og þekktu því vel til í fyrirtækinu.

Hirsch vörurnar eru fáanlegar í yfir 56 löndum að Íslandi meðtöldu og eru þekktustu vörurnar hér á landi tyggjó fylltir kúlusleikjó og ávaxtakaramellur

04. apríl 2011 | Vörumerki

Daim

Daim hefur verið á markaði síðan 1953 og varð strax mjög vinsælt. Daim er blanda af stökkri karamellu og mjúku súkkulaði með möndlubragði, algjörlega einstakt súkkulaðistykki sem neytendur elska.

Daim er einnig frábært í alls kyns eftirrétti, hvort sem það eru Daim tertur, Daim ís eða Daim konfektmolar.

05. febrúar 2011 | Vörumerki

Cote d'Or

Hin gómsæta saga Cote d’Or saga hófst 1883, þegar belgískur súkkulaðigerðamaður ferðaðist til Afríku til að leita að besta kakói í veröldinni. Afraksturinn þekkjum við öll í dag og er Cote d’Or stolt af því að vera opinber súkkulaðiframleiðandi belgísku konungsfjölskyldunnar. Þekktastar hérlendis eru vitanlega fílakaramellurnar en Cote d’Or hefur á að skipa fjölmörgum álíka gómsætum súkkulaðivörum.
05. febrúar 2011 | Vörumerki

Chicago Town

Chicago Town frosnu pizzurnar eru einungis unnar úr fyrsta flokks hráefni og þú trúir því vart að þær séu frosnar og eldaðar úr ofninum þínum heima í eldhúsi. Fljótleg og gómsæt máltíð sem hentar við hin ýmsu tækifæri, sem fljótlegur málsverður, í gleðskapnum, yfir boltanum… notaðu bara hugmyndaflugið!!
05. febrúar 2011 | Vörumerki

Anthon Berg

Anthon Berg er elsti súkkulaðiframleiðandi í Danmörku, með yfir 100 ára sögu og reynslu í súkkulaðigerð. Frá upphafi, eða árinu 1884, hefur hið ævarandi lögmál verið að framleiða aðeins hágæðasúkkulaði. Í meira en hálfa öld hefur Anthon Berg borið með stolti sæmdarheitið “Birgðasali dönsku hirðarinnar” sem er heiður sem aðeins þeir bestu hljóta.

11. apríl 2011 | Vörumerki

Cellini

Cellini varð til við sameiningu nokkra vörumerkja á Ítalíu árið 1985. Filicori stofnað 1883, Eureka stofna 1933 og Columbia stofnað 1946.

Það er óhætt að segja að baki framleiðslu á Cellini kaffi séu þrjár kynslóðir sem hafi sérhæft sig í brennslu á hágæða kaffi, þar sem lykilatriði í framleiðslunni séu alltaf það besta mögulega kaffi sé notað í framleiðsluna.

23. mars 2011 | Vörumerki

Capri Sonne

Allir þekkja Capri-Sonne, mest selda krakkadrykkjarvörumerkið í heiminum.  Frábært úrval ferskra ávaxtadrykkja sem höfða til krakka á öllum aldri.  Ekki spilla umbúðirnar fyrir sem eru með eindæmum handhægar, þægilegar svo ekki sé nú minnst á umhverfisvænar.  Saga Capri-Sonne hófst fyrir 40 árum síðan og er hvergi nærri á enda, fylgstu með ævintýrinu!!

12. mars 2012 | Fréttir

Gevalia fær Lúðurinn fyrir árið 2011

Framúrskarandi viðtökur íslenskra kaffiunnenda hafa gert Gevalia að mest selda kaffi á Íslandi og fært auglýsingaherferðinni Lúður ársins 2011.
12. mars 2012 | Fréttir

Ný vörumerki hjá Innnes

Nú nýverið bættust í vöruflóru Innnes vörumerkin Cadbury, Bassett’s og Halls.
16. janúar 2012 | Vörumerki

Falksalt

Falksalt sjávarsalt hefur náð einstökum vinsældum meðal stjörnukokka, veitingastaðaeigenda og alls áhugafólks um mat um allan heim. Kryddað eða náttúrulegt, allt til að gefa þér innblástur. Falksalt er eingöngu búið til úr hreinu sjávarsalti úr Miðjarðarhafinu. Kryddi er svo bætt við til að gera upplifunina enn betri. Þetta salt á eftir að koma þér óvart því salt er ekki bara salt.
23. apríl 2013 | Fréttir

Eldvarnarnámskeið

Starfsfólk INNNES sótti í síðustu viku eldvarnarnámskeið hjá Hlyni Höskuldssyni slökkviliðsmanni og bráðatæknir Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
18. apríl 2013 | Vörumerki

Oscar

18. apríl 2013 | Vörumerki

Cadbury

18. apríl 2013 | Vörumerki

Bassetts

18. apríl 2013 | Vörumerki

Campofrio

18. apríl 2013 | Vörumerki

Halls

19. apríl 2013 | Vörumerki

Go Tan

19. apríl 2013 | Vörumerki

Vepo

19. apríl 2013 | Vörumerki

Villa Verde

22. apríl 2013 | Vörumerki

Flanders Best

18. apríl 2013 | Vörumerki

Tabasco

10. apríl 2013 | Fréttir

Aprílfundur Klúbbs matreiðslumeistara

Fundur klúbbsins þann 9. apríl fór fram í húsakynnum Innnes
08. mars 2013 | Fréttir

Framúrskarandi fyrirtæki 2012

Creditinfo hefur veitt Dalsnes ehf., eiganda Innnes, þessa nafnbót
21. febrúar 2013 | Fréttir

Kaffihátíð í Hörpunni.

Innnes var þátttakandi í Kaffihátíð í Hörpunni 16. - 17. febrúar.
23. mars 2011 | Fréttir

Innnes styrkir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur

Heildverslunin Innnes ehf. hefur í gegnum árin margsinnis látið fé og vörur af hendi rakna til styrktar margvíslegri góðgerðar- og hjálparstarfsemi.
23. mars 2011 | News

Innnes makes a donation to charity

Innnes Ltd. has through the years on many occasions donated money and goods to various charity foundations...
23. mars 2011 | Fréttir

Ný vörumerki Innnes

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Innnes hefur tekið við dreifingu og sölu á sælgæti frá Storck...
23. mars 2011 | News

New brand acquisitions for Innnes

It is our pleasure to announce that Innnes has taken over the distribution and sales of Storck confectionery brands.
20. febrúar 2013 | Annað útgefið efni

OSCAR 2013

21. júlí 2011 | Annað útgefið efni

Pataks Bæklingur

Pataks Bæklingur
02. ágúst 2011 | Fréttir

Vinningshafi í Billys leiknum

Dregið hefur verið í Billy‘s leiknum sem haldinn var í samstarfi við 10-11 og hlaut Oddbergur Sveinsson glæsilegan iPad í vinning.  Viljum við óska honum til hamingju með sigurinn og einnig viljum við þakka öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í leiknum.
30. júní 2011 | Fréttir

Grillsumarið Mikla

Nýr grillleikur Hunt’s, Caj P og Patak’s í samstarfi við Weber og lambakjot.is.
11. apríl 2011 | Vörumerki

Neuhauser

Neuhauser framleiðir gæðabrauð, croissants, bakkelsi og framtíðarsýn fyrirtækisins er að verða fremsta fyrirtæki á sínu sviði í Evrópu.

Svo mikið er víst að Neuhauser er á góðri leið með að ná sínu markmiði á Íslandi þar sem vörunum hefur verið tekið opnum örmum. Vörumerkið hefur á að skipa breiðri vöruflóru sem allar hafa eitt sameiginlegt, gæði.

11. apríl 2011 | Vörumerki

Nupo

Nupo duftið var þróað af virtum vísindamönnum á sviði offitu og þyngdartaps, þar á meðal lækninum Flemming Quaade, á Hvidovre spítalanum á 7. áratugnum. Síðan þá hefur stöðug vöruþróun átt sér stað, og Nupo prófaðar til hins ítrasta í klínískum rannsóknum. Nupo vörurnar eru þannig með virtustu leiðum til þyngdartaps á markaðnum. Nupo vörurnar eru jafnframt samþykktar af yfirvöldum sem heilstæð leið til að grennast, þ.e. að matarræði megi að öllu leyti samanstanda af Nupo vörum. Öryggismat á næringartengdum áhrifum er algerlega fullnægjandi.

Þess má til gamans geta að Nupo er samsett úr orðinu "Nutritional Powder".

11. apríl 2011 | Vörumerki

Philadelphia

Philadelphia er ótrúlega alhliða ostur og má nota hann í hundruðir girnilegra uppskrifta sem og áleggs á samlokuna. Þú getur notað með smásykri sem krem á köku, notað hann á vefjur til að gera fajitas, gera ídýfu úr honum, notað hann í matargerð og svo mætti lengi telja.

 Ef þig vantar hugmyndir geturðu líka nálgast Philadelphia uppskriftir á heimasíðunni.

07. janúar 2013 | Fréttir

Nýr forstjóri Innnes

Magnús Óli Ólafsson hefur tekið við sem forstjóri Innnes
04. apríl 2011 | Kjúklingur

Teriyaki kjúklingur með hvítlauksnúðlum

Skerið kjúklinginn í ca 1,5 x 1,5 cm bita. Hitið upp smá olíu á pönnu og steikið kjúklinginn ásamt grænmetinu í nokkrar mínútur. Setjið Blue Dragon Teriyaki sósuna út í og látið malla á lágum hita í ca. 20 mínútur.

 

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Oreo, Toblerone og Philadelphia tríó

Einfalt og gómsætt, þessi frábæri eftirréttur hentar vel fyrir öll tækifæri!
04. apríl 2011 | Svínakjöt

Svínalund í Hoisin sósu með wasabi kartöflumús

Brúnið kjötið á pönnu í stutta stund við háan hita, takið síðan af og penslið ríkulega með Blue Dragon Hoisin sósunni. Rúllið kjötinu upp úr sesamfræjunum og steikið í ofni við 150° í u.þ.b. 15-20 mínútur. Látið síðan kjötið bíða í nokkrar mínútur og skerið það í þunnar sneiðar.
04. apríl 2011 | Kjúklingur

Satay kjúklingaspjót með núðlusalati

Skerið kjúklinginn í 12 strimla og marinerið þá í sojasósu og sítrónusafa í a.m.k 30 mínútur. Þræðið síðan kjúklinginn upp á spjót og penslið með satay sósu.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Ritz samlokur

Skemmtilegar Ritz samlokur sem hitta beint í mark hjá yngri kynslóðinni.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Sumarsprengja með rjómaostskremi

Einfalt og gómsætt. Þessi frábæri eftirréttur er stútfullur af perum og súkkulaði! Í raun má setja nánast hvaða fyllingu sem er í deigið, t.d. epli, kirsuber, ferskjur, jarðarber eða hindber.

Skrælið perurnar, kjarnhreinsið þær og skerið í litla bita. Bræðið smjörið á pönnu við vægan hita og léttsteikið perurnar í því í 2-3 mínútur. Saxið Daim-súkkulaðið og Toblerone-súkkulaðið og setjið í skál ásamt púðursykri og möndlum. Bætið perunum út í og blandið öllu vel saman. Takið eina deigþynnu og leggið hana á hreinan flöt. Penslið deigið með bræddu smjöri og leggið aðra

deigþynnu ofan á. Penslið hana líka með smjöri og þannig koll af kolli þar til deigið er uppurið. Setjið fyllinguna í miðjuna á deigfletinum og rúllið deiginu upp í eina stóra lengju. Snúið samskeytunum niður og brettið endana undir lengjuna. Smyrjið aflangt álform vel og setjið það síðan ofan í annað álform (þetta kemur í veg fyrir að lengjan brenni). Leggið lengjuna í formið, penslið hana með bræddu smjöri og stráið 1 matskeið af hrásykri yfir. Bakið við 180°C í 30

mínútur eða grillið við meðalhita í 25-30 mínútur.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Toblerone-brownies

Gómsæt Toblerone Brownies uppskrift sem hentar vel fyrir öll tækifæri.

04. apríl 2011 | Fiskréttir

Grillaður lax með teriyaki

Hitið ofninn og eldið laxinn í u.þ.b. 15-20 mínútur við 180°. Berið síðan fiskinn fram með núðlunum.
04. apríl 2011 | Eftirréttir

Toblerone-ís

Þetta er ein af Toblerone ís uppskriftunum sem margir landsmenn telja alveg ómissandi á veisluborðið.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Toblerone-ísterta

Gómsæt Toblerone uppskrift sem hentar vel fyrir öll tækifæri.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Toblerone-mús

Gómsæt Toblerone uppskrift sem hentar vel fyrir öll tækifæri.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Ávaxtasalat með hnetum og vanilluís

Afhýðið og þerrið ávextina, hitið smjör á pönnu og byrjið á að steikja eplin í nokkrar mínútur.
04. apríl 2011 | Eftirréttir

Toblerone-terta

Þú verður ekki svikin(n) af þessari Toblerone tertu, algjörlega ómissandi á veisluborðið.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Tveggja laga Toblerone og Philadelphia ostakaka

Einstaklega góð ostakaka sem hentar vel fyrir öll tilefni.

04. apríl 2011 | Eftirréttir

Toblerone-Brúðarterta

Klassísk og falleg brúðarterta sem er flott á veisluborðið í brúðkaupinu.
04. apríl 2011 | Eftirréttir

Toblerone brúðarterta með Daim-búðingi

Algjörlega ómótstæðileg brúðarterta sem hentar vel fyrir alla í brúðkaupinu!
11. apríl 2011 | Vörumerki

Aviko

Markaðsleiðandi í Evrópu í frönskum kartöflum fyrir veitingastaði, vörumerki sem setur gæði ofar öllu og uppsker eftir því. Gæði kartafla fer að stórum hluta eftir gæðum ræktenda og þar sem Aviko er meðvitað um þessa staðreynd eru þeir sérvaldir eftir ströngustu gæðastöðlum. Aviko fjárfestir ekki einungis í tækja- og hugbúnaði til framleiðslu heldur einnig í landsvæðum ætluðum til ræktunar og uppfylla þær kröfur sem fyrirtækið gerir.
05. apríl 2011 | Vörumerki

Billys

Billy’s pizzur hafa svo sannarlega sett sitt mark á hinn íslenska frystiréttamarkað. Þessar sænskættuðu pizzur hafa hlotið einróma lof íslenskra neytenda, sérstaklega hjá börnum og unglingum þar sem þær passa vel í nestisboxið í skólann og fríska sannarlega upp á tilbreytingarlaust nestið. Þær henta líka vel til að henda í örbylgjuofninn þegar heim er komið. Þessar ferköntuðu og ljúffengu pizzur eru einungis búnar til úr fyrsta flokks hráefni.
05. apríl 2011 | Vörumerki

CajP

Caj P grillolíurnar eru fullkomnar til að pensla og marínera kjöt eða sem einfaldur bragðbætir með kjöti og grænmeti. Ef þú vilt spennandi keim af sósunni þinni geturðu líka sett smá Caj P í hana. Caj P græjar grillið og gefur því þetta einstaka bragð sem þú færð hvergi annars staðar.
05. apríl 2011 | Vörumerki

Twinings

Twinings hóf að selja te í Englandi árið 1706. Í dag selur Twinings meira en 200 afbrigði af te til meira en 100 landa um allan heim. Vertu hlut af 300 ára sögu ástríðu og hollustu Twinings í að færa þér besta te sem völ er á. Twinings er fágað te og sannir unnendur góðs tes kunna að meta það.

 

05. apríl 2011 | Vörumerki

Salomon FoodWorld

Salomon FoodWorld opnar fyrir þér nýjan heim matargerðar og býður þér upp á girnilegar vörunýjungar og yfirgripsmikla þekkingu, fyrir magnnotendur, fyrir allar gerðir veitingastaða og uppfyllir alls kyns þarfir. Salomon er sérfræðingur á heimsvísu í frosnum þægindavörum, sem eru frábærar á bragðið og fljótlegar og auðveldar í meðförum.

05. apríl 2011 | Vörumerki

Ryvita

Ryvita hrökkbrauðið hefur mikið vöruúrval og gefur þér möguleikann á að njóta heilsusamlegs snakks milli mála sem bragðast einnig vel. Ryvita Crispbreads eru búin til úr hágæða heilhveiti. Þær eru ríkar af trefjum og færa þér hollt mataræði sem er gott fyrir meltingakerfið.
05. apríl 2011 | Vörumerki

Rose Poultry

05. apríl 2011 | About us

About INNNES

INNNES is a leading importer and wholesaler in Iceland, focusing on high quality food products. The company´s headquarters are located in Reykjavik, the capital of Iceland. INNNES represents over 150 brands, a substantial part of those are market leaders. INNNES‘ objective is swift service and good personal contact with its customers.

11. apríl 2011 | About us

Employees

INNNES has about 100 employees and it´s located in Reykjavik and Akureyri.

12. apríl 2011 | About us

Location

 

 

05. apríl 2011 | Vörumerki

El Paradiso

11. apríl 2011 | Vörumerki

Toms

Toms sælgætisvörurnar hafa ríka hefð að baki sér en standa einnig fyrir nýjungar. Þessar dönsku gæðavörur hafa verið seldar á Íslandi í fjölda ára og hafa á að skipa nokkrum undirvörumerkjum, t.d. Ga-Jol, Pingvin og Anthon Berg.

05. apríl 2011 | Vörumerki

Pascual

Pascual jógúrtin er framleidd eftir nýjustu tækni sem gerir kleift að geyma vöruna án kælingar í allt að 6 mánuði. Varan er gerilsneydd með hitameðferð og innsigluð, án þess að það hafi áhrif á bragð, gæði eða næringargildi vörunnar. Margir Íslendingar þekkja Pascual úr sumarfríum sínum til Evrópulanda en fyrirtækið er t.d. stærsti mjólkur-framleiðandinn á Spáni.
05. apríl 2011 | Vörumerki

Almondy

Almondy kökurnar eru allar gerðar úr möndlubasa og eru framleiddar eftir sænskri leyniuppskrift frá árinu 1890. Almondy bakar kökur sínar einungis upp úr vandlega völdu hráefni og þær innihalda engin litar né- gerviefni. Þær innihalda ekki hveiti og eru því glútenlausar. Þær bragðast frábærlega og eru til í nokkrum bragðtegundum. Prófaðu.

05. apríl 2011 | Vörumerki

La Choy

Bættu asíska bragðinu í mataræðið þitt! La Choy býður uppá spennandi flóru af asískum sósum, soja-, súrsætri og Teriyaki sósu. La Choy sojasósan er mest selda sojasósan á Íslandi og hefur fallið vel í kramið hérlendis. Sósurnar eru enda framleiddar af einum stærsta matvælaframleiðanda í heimi og hafa verið á markaðinum í fjölda ára.
08. apríl 2011 | Vörumerki

Cachet

Cachet súkkulaðið frá Kim’s er hágæða belgískt súkkulaði en Belgar eru heimsþekktir fyrir súkkulaðiframleiðslu sína. Það er engin tilviljun að 90% af framleiðslu Kim’s er til útflutnings því fólk um allan heim vill fá þetta gæðasúkkulaði og eru því margir um hituna. Cachet súkkulaðið er til í öllum mögulegum stærðum og gerðum og hvaða sælkeri sem er ætti því að finna eitthvað við sitt hæfi.

05. apríl 2011 | Vörumerki

Wesson

Wesson olíur hafa verið hjarta matargerðar í Bandaríkjunum í meira en 100 ár og hafa verið á íslenskum markaði í næstum 20 ár. Boðið er uppá canola olíu sem hefur minna af harðri fitu en allar aðrar olíur, kornolíu, grænmetisolíu, sólblómaolíu auk feiti ætlaðri fyrir bakarí.

05. apríl 2011 | Vörumerki

Swiss Miss

Swiss Miss heitt kakó er frábær drykkur við hin ýmsu tækifæri, bæði í ferðalögin, á vinnustöðunum og einnig þegar á að hafa það gott heima fyrir. Swiss Miss kakó er hægt að fá með sykurpúðum og án, kaloríusnautt, í dósum og í bréfum. Swiss Miss kakó er mest selda heita kakóið á Íslandi.
05. apríl 2011 | Vörumerki

Skittles

Skittles er skemmtileg blanda af mjúku ávaxtasælgæti með litskrúðugri og gómsætri skel. Með Skittles hefur fólk smakkað á regnboganum í áratugi. Í dag, eru 200 milljón Skittles töflur framleiddar hvern einasta dag, og það eru að meðaltali 42 Skittles töflur í venjulegum poka. Smakkaðu á regnboganum með Skittles.

05. apríl 2011 | Vörumerki

ConAgra

Conagra er stærsti framleiðandi á hveiti í Bandaríkjunum. Hveitið frá Conagra er þekkt fyrir mikil gæði og stöðugleika og því kemur það ekki á óvart að þeir aðilar sem hafa keypt það á annað borð vilja ekki neitt annað. Conagra hveitið er aðeins selt til framleiðslu en ekki í smásölu og þá til pizzustaða, veitingastaða, bakaría, til framleiðslufyrirtækja svo nokkur dæmi séu nefnd.

05. apríl 2011 | Vörumerki

Tilda

Tilda hrísgrjón hafa á stuttum tíma náð mikilli útbreiðslu, fyrirtækið er aðeins 30 ára gamalt og er vörumerki þeirra selt í yfir 40 löndum. Tilda eru mest seldu hrísgrjónin á Íslandi og hafa verið um árabil. Stolt Tilda eru Basmati hrísgrjónin en þau hafa einstakt bragð, áferð og lykt enda framleidd aðeins framleidd á einum stað í heiminum, í Punjab héraði á Indlandi.
05. apríl 2011 | Vörumerki

Mission

05. apríl 2011 | Annað útgefið efni

Grillaðu á góðum degi!

Grillaðu á góðum degi.
05. apríl 2011 | Vörumerki

Hubba Bubba

Þykir þér gaman að blása tyggjókúlur? Þá er Hubba Bubba rétta tyggjóið, það er tilvalið til að blása stórar og glæsilegar tyggjókúlur. Stærsta Hubba Bubba tyggjókúlan sem hefur verið mæld reyndist vera 58,42 cm í þvermál. Inná heimasíðunni www.hubbabubba.is getur þú skoða úrvalið af þeim vörum sem seldar eru á Íslandi og tekið þátt í skemmtilegum leikjum.

05. apríl 2011 | Vörumerki

Storck

Hvert fyrirtæki hefur að geyma sína eigin menningu. Hjá Storck er sannfæring og viðskiptastefna til staðar og myndar þetta tvennt nokkuð mjög sérstakt, heiðarleika sem gefur til kynna hvers konar samskipti fyrirtækið á við neytendur, starfsfólk, samstarfsaðila og birgja sína.  Það er aðeins á slíkum grundvelli sem fyrirtæki getur haldið áfram að vaxa og notið farsældar og það er af sömu alúð sem Storck sinnir sínum vörumerkjum.  Hérlendis eru þekktust þeirra, Toffifee, Werther's Original og Merci.  Allt eru þetta þekktar og dáðar vörur hjá íslenskum neytendum og hafa verið um árabil.

06. apríl 2011 | Vörumerki

Werthers Original

Fyrir löngu síðan bjó sælgætisgerðarmaðurinn Gustav Nebel til sitt þekktasta verk í litlu þorpi sem kallaðist Werther. Hann notaðist við ferskan rjóma, alvöru smjör, hvítan og brúnan sykur, saltklípu og gnótt af tíma. Sælgætið var síðan nefnt eftir þorpinu, Werther’s Original. Margt hefur síðan haldist óbreytt – á meðan aðrir hlutir hafa breyst. Við Werther’s Original rjómabrjóstsykurinn hefur síðan bæst við mikið úrval hnossgætis sem allt er framleitt af sömu natni og alúð. Í dag er á Íslandi einnig hægt að fá Chocolate Speciality sem eru mjúkir súkkulaðimolar með hinu gómsæta Werther’s Original karamellubragði.
06. apríl 2011 | Vörumerki

Toffifee

Sívaxandi vinsældir Toffifee koma engum á óvart! Innihaldið talar sínu máli, stökk heslihneta á karamellubeði, núggatrjómi og dropi af dökku súkkulaði ofan á. Einfaldlega hin fullkomna samsetning fyrir hvern sem er. Árið 1973 sameinaði framleiðandi Toffifee, Storck, þessi fjögur vinsælustu sælgætishráefni og bjó til þetta einstaka súkkulaðiafbrigði. Enn þann dag í dag stenst engin vara Toffifee á sporði.

06. apríl 2011 | Vörumerki

Merci

“Merci” er orðið sem sagt er um allan heim en hugmyndin að Merci súkkulaðinu fæddist fyrst í Þýskalandi árið 1965 og óhætt er að segja að hún hafi strax hitt fólk beint í hjartastað. Merci varð síðar fyrsta gjafasúkkulaðið sem hægt var að gefa þegar fólk vildi sýna öðrum sérstakt þakklæti, gómsætar úrval súkkulaðistanga sem hver um sig eru vafðar í gyllta pakkningu. Í dag geta neytendur á Íslandi einnig sagt “kærar þakkir” með Merci súkkulaðinu og hafa þeir óspart nýtt sér það enda vörunni verið tekið með opnum örmum hvarvetna sem hún hefur komið.

06. apríl 2011 | Vörumerki

Fishermans friend

06. apríl 2011 | Vörumerki

Peter Pan

Það þekkja allir hið yndislega hnetusmjörsbragð Peter Pan. Uppáhalds álegg krakka svo og algengt í bakstur, boðið er uppá creamy (mjúkt og án bita) og crunchy (með hnetubitum).  Peter Pan er frábært á brauðsneiðina, svo ekki sé nú minnst á bráðhollt þar sem hnetur hafa frá náttúrunnar hendi lágt kolesteról og lítið af mettaðri fitu.
06. apríl 2011 | Vörumerki

Osaka

06. apríl 2011 | Vörumerki

Paradiso

16. janúar 2012 | Vörumerki

Canderel

Canderel má nota í staðinn fyrir sykur, hvort sem er út í kaffið eða í súkkulaðikökuna. Canderel fullnægir sætuþörf líkamans en er nærri hitaeiningasnautt og hentar því öllum sem vilja minnka sykurneyslu. Canderel er hluti af hinni stóru Merisant fyrirtækjasamsteypu sem framleiðir og markaðssetur lág-hitaeininga sætuefni um allan heim.

Merisant er leiðandi á þessu sviði. Í dag markaðssetur fyrirtækið meira en 19 vörumerki í meira en 100 löndum. Tíu milljónir neytenda njóta sæta bragðsins af Merisant sætuefnum, sérhvern dag , án allra hitaeininga.

06. apríl 2011 | Vörumerki

Parmareggio

06. apríl 2011 | Vörumerki

Torsleffs

11. apríl 2011 | Vörumerki

Kohberg

Alfred Kohberg opnaði fyrsta bakaríið sitt í Rødekro, það var síðan flutt til Bolderslev og var breytt í rúgbrauðs-framleiðslubakarí.

Árið 1989 seldi fjölskyldan fyrirtækið og síðan þá hefur Kohberg skapað sér þann sess í Danmörku að vera stærsta bakari í danskri eigu. Vörumerkin sem Kohberg á eru: Kohberg®, Herkules®, Viking®, Trianon® og H.C. Andersen®.

06. apríl 2011 | Vörumerki

Prince

Gleði, stíll, karakter og tilfinning ..... LU Prince - það stökka kex með dýrindis súkkulaði bragði. Prince kex er bragðgott kex sem hentar fyrir alla aldurshópa. Tvær stökkar kexkökur fylltar með ljúffengu mjólkursúkkulaði á milli. Tilvalið fyrir alla að njóta með kaffinu, teinu eða á milli mála. Prófaðu og þú verður ekki svikin/n!
07. apríl 2011 | Vörumerki

Ristorante

Ristorante pizzur bragðast alveg eins og á ekta ítölskum veitingastað. Þær hafa einstakan þunnan og stökkan botn ásamt því að vera ríkulega hlaðnar alls kyns ljúffengu áleggi. Ristorante vörumerkið býður einmitt upp á úrval af áleggi sem þú myndir vænta á matseðli á ekta ítölskum veitingastað.  Viðtökurnar á Íslandi hafa verið með hreinum ólíkindum og ljóst að Íslendingar kunna vel að meta þessar frábæru pizzur.
07. desember 2012 | Fréttir

Styrkur Hunt's til Bleiku slaufunnar

Í október styrkti Hunt‘s Bleiku slaufuna um 800.000 kr.
11. apríl 2011 | Vörumerki

JHS

Framleiðsla á J. Hungerford Smith íssósum og dýfum hófst 1879 í Bandaríkjunum og síðan þá hefur vörumerkið náð þeim stalli að vera hið mest selda í heiminum í sínum geira. Aðeins bestu fáanlegu hráefni eru notuð í framleiðsluna og það eru þau sem gefa JHS rétta bragðið, lykt og áferð. Hágæða hollenskt kakó er t.d. flutt inn til Bandaríkjanna í framleiðsluna til þess að ná sem mestu gæðum.
11. apríl 2011 | Vörumerki

PAM

Pam er eftirlætis matarolíusprey Bandaríkjamanna og ekki er fjarri lagi að segja slíkt hið um sama um Íslendinga. Pam er óumdeildur leiðtogi í matarolíuspreyi, stórgóð vara sem passar við öll fyrirtæki, steikingar, bakstur, grill o.fl. Einungis 7 kaloríur og minna en 1 gramm af fitu í hverjum skammti.

11. apríl 2011 | Vörumerki

Rosarita

Rosarita chili salsa og jalapeno pipar njóta sívaxandi vinsælda í íslenskri matargerð, enda mikil vakning á mexíkóskri matargerð hérlendis. Vörurnar þykja einstaklega góðar enda er leitast eftir að nota einungis bestu fáanlegu hráefni í framleiðsluna.  Rosarita vörurnar eru einungis seldar í stórum einingum til framleiðslu hérlendis.
11. apríl 2011 | Vörumerki

Master Martini

Gervirjóminn frá Master Martini er framleiddur á Ítalíu við bestu mögulegu aðstæður og strangir gæðastaðlar eru viðhafðir hjá framleiðandanum, Unigra.  Þessi vinnubrögð skila sér svo sannarlega í frábærri og stöðugri vöru sem neytendur geta treyst hvenær sem er við alls kyns matargerð.

11. apríl 2011 | Vörumerki

Oilio

Canola og sojaolía í 20L brúsum, til stórnotenda. Gæðaolía frá Belgíu sem er framleidd eftir ströngustu og nýjustu gæðastöðlum í Evrópu þar sem fyllsta hreinlætis og gæðaeftirlits er gætt.
11. apríl 2011 | Vörumerki

Nusco

Súkkulaði- og heslihnetuálegg sem framleitt er í Hollandi, og er framleiðandinn einn sá stærsti í sínum flokki í Evrópu. Bragðgott álegg, frábært fyrir krakka og alla þá sem vilja hafa það gott.
11. apríl 2011 | Vörumerki

N-Rich

N-Rich duftkaffirjóminn hefur verið á íslenskum markaði í áraraðir og þessi brúna dós er fyrir löngu orðin alþekkt hjá neytendum hérlendis.

11. apríl 2011 | Vörumerki

Mornflake

Mornflake fyrirtækið hefur allt frá árinu 1675 malað hafra í sveitum South Cheshire í Bretlandi.  15 kynslóðum síðar er fyrirtækið enn í einkaeigu og undir stjórn beinna afkomenda hins upphaflega malara, William Lea. Hér á Íslandi er Mornflake haframjölið gríðarlega vinsælt en varan er fyrst og fremst seld í stórnotendapakkningum við góðan orðstír.

11. apríl 2011 | Vörumerki

Nonni Litli

02. nóvember 2011 | Fréttir

Vinningshafar í morgunverðapotti á Stóreldhúsinu 2011

Við viljum byrja á því að þakka fyrir okkur og frábærar móttökur á Stóreldhúsinu 2011 sem nú er ný staðið yfir.





Þar að auki höfum við dregið út þá 7 þáttakendur í Morgunverðarhlaðborðsleiknum okkar.

12. apríl 2011 | Vörumerki

Champion

24. október 2011 | Fréttir

Velkomin á Stóreldhúsið 2011

Velkomin á Stóreldhúsið 2011
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna á sýningarbás okkar á sýningunni Stóreldhúsið 2011 til að kynna sér hina breiðu flóru af mat- og drykkjarvörum sem
Innnes hefur upp á að bjóða.
Sýningin fer fram á Grand Hótel 27. og 28. október
og hefst frá kl: 12:00 til kl: 18:30 báða dagana.
Hlökkum til að sjá þig!
Með kveðju,
Starfsfólk Innnes
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna á sýningarbás okkar á sýningunni Stóreldhúsið 2011 til að kynna sér hina breiðu flóru af mat- og drykkjarvörum sem Innnes hefur upp á að bjóða.
21. september 2011 | Vörumerki

Europastry

18. október 2011 | Fréttir

Vinningshafi í Oreo leiknum

Í tilefni af afmæli Smárlindarinnar helgina 8-9. október var Oreo með leik. Þúsundir þátttakenda tóku þátt í leiknum og giskuðu á fjölda Oreo kexkassa í Hagkaupsglugganum og höfðu rétt fyrir sér með svarið 60 kexkassar.  Einn heppinn þátttakandi var dreginn út í leiknum og sú heppna heitir Sigríður Jónsdóttir en hún vann sér inn 30.000 kr. gjafabréf í Hagkaup og ársbirgðir af Oreo.

13. apríl 2011 | Vörumerki

Levi Roots

13. maí 2011 | Fréttir

Erlendur gestakokkur í heimsókn

Gestakokkur frá Svíþjóð, Anders Tegnér, í heimsókn hjá Innnes.
04. október 2012 | Fréttir

Hunts styrkir Bleiku slaufuna

Hunt's styður baráttuna gegn krabbameinum í október
29. september 2011 | Annað útgefið efni

Pizzan