Senda uppskriftina:
Frosið Toblerone soufflé
Frosið Toblerone soufflé
Eftirminnileg soufflé uppskrift á veisluborðið!
Innihald
- Fyrir 4
- 225 g Toblerone
- 2 egg
- 100 g sykur
- 2 1/2 dl rjómi
- 2 eggjahvítur
- rifsber eða önnur ber til skreytingar
Aðferð
Bræðið Toblerone gætilega í vatnsbaði eða örbylgjuofni og látið það kólna dálítið. Þeytið egg og sykur mjög vel saman og hrærið síðan súkkulaðinu saman við. Þeytið rjómann og blandið honum saman við með sleikju og stífþeytið að lokum eggjahvíturnar og blandið þeim einnig gætilega saman við með sleikju. Klippið renninga úr bökunarpappír eða álpappír og setjið utan um 4 litlar souffléskálar eða önnur svipuð ílát - þeir þurfa að ná vel upp fyrir barmana. Festið þá með teygju eða lími. Hellið ísblöndunni í skálarnar og látið hana ná a.m.k. 1 sm upp fyrir barmana. Frystið í 6 klukkutíma eða lengur. Fjarlægið pappírinn áður en ísinn er borinn fram og skreytið með berjum.


