Senda uppskriftina:
Satay kjúklingaspjót með núðlusalati
Satay kjúklingaspjót með núðlusalati
Fyrir 4.
Innihald
4 stk. kjúklingalundir
2 msk. Blue Dragon sojasósa
1 msk. sítrónusafi
1 stk. Blue Dragon Sataysósa (330 ml.)
12 stk. grillpinnar
4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.)
1 stk. vorlaukur
6 msk. Blue Dragon Sweet Chili sósa
50 gr. salat, t.d. rucola
Skerið kjúklinginn í 12 strimla og marinerið þá í sojasósu og sítrónusafa í a.m.k 30 mínútur. Þræðið síðan kjúklinginn upp á spjót og penslið með satay sósu. Eldið í ofni á 25O° hita þar til kjúlingurinn er fulleldaður. Eldið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Skerið vorlaukinn í strimla og steikið hann ásamt núðlum á pönnu í nokkrar mínútur. Bætið Blue Dragon Sweet Chili sósunni samanvið og takið af pönnunni. Blandið síðan salatinu við núðlurnar og berið fram með kjúklingaspjótunum.


