Toblerone-mús

Gómsæt Toblerone uppskrift sem hentar vel fyrir öll tækifæri.

fyrir 6

Innihald
  • 4 blöð matarlím
  • 4 dl rjómi, þar af 1 dl til að skreyta með
  • 4 egg
  • 4 msk. sykur
  • 300 g Toblerone
  • 3-4 msk. vatn




Aðferð

Leggið matarlím í bleyti í kalt vatn. Léttþeytið rjóma. Þeytið saman egg og sykur. Bræðið 160 g af Toblerone ásamt vatni við vægan hita. Bræðið matarlímið í vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Takið frá rjóma til að skreyta með og blandið afganginum saman við eggjahræruna. Bætið bræddu Toblerone út í og hrærið vel saman. Hellið matarlími saman við í mjórri bunu og hrærið í á meðan. Hellið í fallega skál, kælið og skreytið með Toblerone og rjóma, það er fallegt að setja svolítið af karamellusósu á súkkulaðið ef þið eigið.