Senda uppskriftina:
Toblerone brúðarterta með Daim-búðingi
Toblerone brúðarterta með Daim-búðingi
Algjörlega ómótstæðileg brúðarterta sem hentar vel fyrir alla í brúðkaupinu!
Innihald
2 hvítir svampbotnar:
- 4 egg
- 200 g sykur
- 70 g hveiti
- 70 g kartöflumjöl
- 1 tsk. lyftiduft
Daim-búðingur:
- 3 matarlímsblöð
- 2 eggjarauður
- 3 msk. sykur
- 1 tsk. sítrónusafi
- 2 eggjahvítur, stífþeyttar
- 2 dl rjómi, þeyttur
- 100 g Daim-súkkulaði, grófsaxað
Skreyting:
- 1 l rjómi
- 250 g hvítt Toblerone
- ferskir ávextir
Aðferð
2 hvítir svampbotnar:
Þeytið eggin og sykurinn vel saman og sáldrið síðan hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti varlega saman við. Setjið í tvö vel smurð, lausbotna tertumót, 24 sm í þvermál, og bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 15 mínútur við 180°C.
Daim-búðingur:
Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í 5 mínútur. Þeytið saman eggjarauður og sykur þar til blandan verður ljós og létt. Hellið vatninu af matarlímsblöðunum og bræðið þau í sítrónusafanum yfir vatnsbaði. Kælið lítillega og hellið rólega saman við eggjablönduna, í mjórri bunu. Kælið búðinginn aðeins og blandið síðan stífþeyttum eggjahvítunum og þeyttum rjómanum gætilega saman við ásamt mulda Daim-súkkulaðinu.
Setjið Daim-búðingin á milli tertubotnanna og kælið þar til hann er orðinn vel stífur.
Skreyting:
Setjið 1 dl af rjóma í pott og hitið að suðu. Takið pottinn af hellunni, setjið 2 hvít Toblerone-súkkulaðistykki 100g hvort út í og látið þau bráðna í rjómanum. Smyrjið blöndunni síðan ofan á tertuna.
Þeytið 1/2 lítra af rjóma og sprautið honum utan á tertuna.
Bræðið Toblerone-súkkulaði yfir vatnsbaði og smyrjið því með pensli á bökunarpappír. Kælið. Raðið Tobleronesúkkulaðinu utan á kökuna og skreytið með ferskum ávöxtum.



