Vöru bætt við körfu

Fireball

Fireball

Borginni New Orleans hefur ávallt fylgt andi gleði, næturlífs, kryddaðra rétta kraftmikilla drykkja. Hún liggur við ósa Mississippi-árinnar þar sem hún rennur út í Mexíkóflóa og áhrif frá Evrópu, Karabíska hafinu, Suður-Ameríku og Afríku koma saman í litríkan, dúndrandi mannslífs-suðupott. Það þarf því ekki að koma á óvart að einmitt New Orleans er heimavöllur Fireball viskís.

Fireball er ekkert venjulegt viskí og ekki út í bláinn að merki drykkjarins er eldspúandi dreki. „Hafir þú ekki smakkað Fireball enn, ímyndaðu þér hvernig það er að standa andspænis eldspúandi dreka sem er nýbúinn að gleypa viskítunnu fulla af sterkum kanil!“

Það er nefnilega það – Fireball er bragðbætt viskí með kanil sem gerir það rótsterkt og hressandi. Það virkar ljómandi vel bæði sem skot en einnig er Fireball frábært í ótal bragðgóða og hressandi kokteila. Hér sem annars staðar gildir bara að ganga gætilega um gleðinnar dyr, því Fireball bragðast eins og himnaríki, en brennir sem hel – eins og þar stendur.

Drykkjarvöruframleiðandinn Sazerac býr til Fireball og á heimasíðu fyrirtækisins má glöggva sig á ótal spennandi kokteiluppskriftum sem vert er að prófa.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er