Vöru bætt við körfu

Stroh

Stroh

Þó Austurríki sé ekki endilega land sem maður tengir við rommframleiðslu er það samt sem áður svo að frægasta brennda áfengi Austurríkis er einmitt romm. Það er svosem ekki að undra að margir tengi hér á milli því STROH, rommið sem um ræðir, er alls ekkert venjulegt romm.

STROH á sér engu að síður talsvert langa sögu. Drykkur ber nafn stofnandans, Sebastian Stroh, sem stofnaði það í Klagenfurt í Austurríki árið 1832. Fyrsta meiriháttar vegtyllan féll fyrirtækinu í skaut á aldamótaárinu 1900 er rommið hlaut gullverðlaun á heimssýningunni í París. Enn þann dag í dag er upprunaleg uppskrift Sebastian Stroh í heiðri höfð og eins og gefur að skilja er hún háleynileg enda bragðið af STROH einstakt.

STROH óx að vinsældum jafnt og þétt fyrstu 140 árin en þá tók salan mikinn kipp, nánar tiltekið á árunum 1970 til 1971. Ástæðan fyrir þessu auknu vinsældum er almennt talin vera sú að um þetta leyti kvisaðist út að þotuliðið svokallaða (e. Jet Set) drykki kaffi og kakó blandað STROH þegar það væri að skemmta sér milli skíðaferða. Hugtakið „Þotuliðið“ var notað til að lýsa flugríku fólki sem fór mikinn einkum á árunum 1960-1975, flaug milli spennandi áfangastaða víða um heim og skemmti sér í lokuðum samkvæmum, fjarri sauðsvörtum almúganum. Á veturna hélt þessi félagsskapur gjarna til í St. Moritz, Cortina, Gstaad og fleiri evrópskum skíðaparadísum og þegar kom að því að fá sér „après-ski“ drykk, á úfinni gæru fyrir framan snarkandi arineld, varð heitur, STROH-blandaður drykkur fyrir valinu. Það sem ríka fólkið gerir á það til að verða að tísku, og STROH komst því heldur betur í tísku.

Allar götur síðan hefur STROH haldið sínum sessi sem fyrsti kostur þegar kemur að því að setja lögg af einhverju yljandi, bragðgóðu og hjartastyrkjandi út í kakóið eða kaffi, eftir skíðaferð, góða göngu eða bara hressandi útiveru í köldu veðri. STROH er hins vegar mun fjölhæfara en svo að það henti bara út í heita drykki, því það er spennandi valkostur til margvíslegrar kokteilagerðar, er ómissandi í margs konar bakstur og konfektgerð og er loks mikið notað af kokkum við flamberingar, en sökum hins háa áfengisinnihalds hentar STROH sérlega vel til þess arna.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er