Orville
Orville örbylgjupoppið á rætur sínar að rekja til Orville Redenbacher nokkurs, sem ræktaði sérstaka gerð maískorns sem þótti einstaklega heppilegt til poppkornsgerðar. Æ síðan hefur þessari uppskrift verið fylgt í þaula. Orville er langmest selda örbylgjupoppið á Íslandi og er boðið uppá venjulegt popp, léttpopp, smjörpopp ásamt hefðbundnum poppmaís.


